Hvað viltu láta gera? Hvernig væri nú þrífa grænu svæðin og trjábeðin það hefur ekki verið gert í mörg ár. Hvers vegna viltu láta gera það? þarf ég virkilega að svara þessu.
Vel hirt almenn svæði eru hvatning fyrir garðeigendur að hugsa vel um sina garða
Ekki nóg að hreinsa beð á x ára fresti heldur þarf að gera þetta nokkrum sinnum yfir sumarið. Hefur farið versnandi með árunum. Fínt að láta unglingavinnuna í þetta eða einfaldlega ráða fyrirtæki til að sjá um þetta.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/ Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Tek undir þetta, þetta er orðið verulega sóðalegt á að líta. Það er ekki nóg að gera allt fínteinu sinni, það þarf að halda því við. Sting upp á krökkunum í unglingavinnunni eða vinnuskólanum til að snyrta þessi beð á sumrin
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation